Exton er þekkingar- og þjónustufyrirtæki með 15 ára reynslu í leigu og sölu á lausnum fyrir ljós, hljóð og mynd. Tekjusviðin eru tvö – leiga og lausnir. Starfsmenn eru ríflega 30 talsins.
Meðal þjónustu fyrirtækisins er sala og þjónusta á hvers kyns búnaði fyrir leikhús, sjónvarps og útvarpsstarfsemi. Annar mikilvægur hluti starfseminnar er leiga og sala á búnaði til nota við hvers konar viðburði s.s. ráðstefnur, vörusýningar, tónleika, leikhús og margt fleira.
Exton býður einnig heildarlausnir á ýmsum sviðum og hefur fyrirtækið hannað og sett upp búnað í sumum fullkomnustu fundar og ráðstefnusölum landsins.
Í dag er Exton leiðandi fyrirtæki á sínu sviði og byggir á traustum grunni mikillar þekkingar og reynslu starfsmanna.