Hljóðkerfa og ljósaleiga Akureyrar ehf.

Hljóðkerfa og ljósaleiga Akureyrar sérhæfir sig í leigu á hljóð, ljósa, sviðs og myndbúnaði

Nýjustu fréttir

  • Gleðileg jól

    Við hjá HOLA óskum viðskiptavinum okkar nær og fjær, öllu tónlistarfólki og þeim verktökum sem hafa unnið fyrir okkur á árinu, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

    Hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju ári.

    Gleðileg jól

    Tómas Sævarsson
    Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir
    Bernharð Már Sveinsson
    Birgir Rafn Snorrason


  • Fiskidagurinn Mikli 2008

    Þá er Fiskideginum mikla og vináttukleðjuni lokið árið 2008.

    Hátíðin byrjaði á Vináttukeðju en hún fór fram í kirkjubrekkuni á Dalvík.

    Þar fór dagskrá fram á minni sviðsvagninum frá Exton og notast var við Meyer MSL-3 og Meyer 650 í Front of house ásamt Meyer MSL 4 í in-fill. Einnig voru hinir stórfenglegu KSM-9 micrafonar notaðir

    Hljóðmaður: Bernharð Már Sveinsson

    Hljóð á sviði: Tómas Sævarsson

    Sviðsmaður: Birgir Rafn Snorrason

     

    Svo á Laugardeginum  var sjálfur Fiskidagurinn og var dagskrá á aðalsviði frá 11:00 - 17:00.

    Þar komu fram m.a. Hvandalsbræður, Eyþór Ingi, Blúsband Hölla Vals, Leikhópurinn Lotta, Matti Matt og Friðrik Ómar.

    Kerfið var 2faldur Fohhn.

    Hljóðmaður: Trausti Már Ingólfsson

    Hljóð á Sviði: Bernharð Már Sveinsson

    Sviðsmaður: Tómas Páll Sævarsson

     

    Myndir af þessu í myndasafni.


  • Verlsó 2008 yfirstaðinn

    Þá er verslunarmannahelgini 2008 lokið og endaði hún með látum á AKureyrarvelli þar sem dagskráin var ekki af verri endanum.

    Ber þar hæst að nefna Eurobandið ásamt hinum danska Simon Mathew, Villa Vill tribute og Tina Turner tribute.

    Endaði þetta svo á stórfenglegri flugeldasýningu.

    Meðal tækja sem notast var við voru:

    3falt fohhn kerfi

    4x Meyer MSL-3 í side fill

    Sviðsvagn frá Exton

    KSM 9 þráðlausir micrafónar

     

    Hægt er að sjá myndir af þessu í myndamöppuni hjá okkur

     


  • Landsmót Skáta hófst í gær við Hamra í Kjarnaskógi á Akureyri.

    Var hátíðin sett með miklum glæsibrag og sjálfur Páll Óskar kom og kláraði kvöldið með sínum helstu slögurum fyrir bæði innlenda og erlanda skáta.

    Notast er við annan af 2 nýjum sviðsvögnum sem að Exton fengu nýlega og hljóðkerfið er Meyer MSL-4 toppar ásmat Meyer 650 botnum.

    Starfsmenn HOLA sjá um tæknimál á hátíðini.


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning